HSS
HSS

Fréttir

Kolefnisjafna starfsemi 
Reykjaneshafnar með 
gróðursetningu
Sunnudagur 31. október 2021 kl. 07:46

Kolefnisjafna starfsemi 
Reykjaneshafnar með 
gróðursetningu

Reykjaneshöfn tekur mið af stefnu Reykjanesbæjar í umhverfismálum til ársins 2030 og skírskotun hennar í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Ein af stefnuáherslum Reykjanesbæjar er Vistvænt samfélag og með hliðsjón af því hefur Reykjaneshöfn látið greina kolefnisfótspor hafnarinnar svo vinna megi markvisst að lágmarki þess í framtíðinni. 

„Stjórn Reykjaneshafnar fagnar þeim áfanga sem náðst hefur í að greina kolefnisfótspor Reykjaneshafnar. Með þessari greiningu er hægt að vinna markvisst að lækkun kolefnisfótspors hafnarinnar á komandi árum. Þar til að viðunandi markmið náist í þeirri viðleitni telur stjórn Reykjaneshafnar rétt að kolefnisjafna núverandi losun með gróðursetningu trjáa í gengum verkferla Kolviðurs. Samkvæmt mælingu samsvarar kolefnislosun Reykjaneshafnar árið 2020 52,99 tonnum og felur Stjórn Reykjaneshafnar hafnarstjóra að fylgja eftir kolefnisjöfnun þeirra losunar,“ segir í afgreiðslu stjórnar hafnarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta mun Kolviður sjá til þess að gróðursett verði í bæjarlandi Reykjanesbæjar í samstarfi við félagasamtök á svæðinu.